|
Dagar komnir
Fyrir 1646 dögum
dagar á Ítalíu
Talning
Fyrir 1345 dögum
Eg kem heim
|
15.06.2008 16:05:49 / jonbriem
Ta eru tad sidustu dagarnir herna a sardiniu, oll tessi vika hefur farid i tad ad kvedja og undirbua allt.
Kvaddi bekkinn i gaer, fengum okkur pizzu og tadan i bingo, tad var natturulega alveg magnad!! Eg veit nuna hvad gamla folkid ser i tessu, eg sofnadi naestum ur spennu! fundum svo eitthvad karioki og sumir toku lagid, eg gerdi heiminum greida og sagdist vera has...
restina af timanum hef eg svo verid ad hlaeja ad itolum utaf EM, tad er alveg aedislegt, meira segja eg myndi ekki vaela svona mikid utaf domaranum, tad er nefnilega samsaeri i gagni a moti italiu.
Sjaumst eftir 4 daga!! jon
»
08.05.2008 08:11:20 / jonbriem
Ja, tad gerdist loksins, eg skoradi tetta lika gullfallega mark. Vid vorum ad tapa 3-1 tegar eg fekk boltann uti a vinstri kantinum, soladi tvo, faerdi mig yfir a midjusvaedid og med mann i bakinu rett fyrir utan teig skaut eg. Boltinn for yfir markmanninn, i slanna, jordina stongina og inn, gerast ekki flottari.
Restin af leiknum gekk ekki alveg nogu vel en vid endudum a ad tapa 3-2, eg atti svo ad spila med eldri flokknum i gaer(midvikudag) en tar sem teir nenntu ekki ad keppa gafu teir leikinn. Tetta atti ad vera sidasti leikurinn teirra tannig tad er allt buid hja teim, baedi aefingar og leikir. Hja minum hop eru sidan bara 2 leikir eftir og eftir tad haettum vid lika.
Eg verd sem sagt einn manud an fotbolta adur en eg kem heim, tvi ad eg(reyndar pabbi en tad er aukaatridi) er buinn ad boka flug heim, 17. juni til London, verd tar eina nott og svo heim daginn eftir, 18. juni.
Eg for a strondina um daginn med nokkrum vinum minum, teir bua i bae rett hja sjonum tannig ad eg aetladi ad taka straeto og hitta ta tar, getur ekki verid svo flokid er tad nokkud? Fyrst turfti eg ad fara a adalstraetostodina og tadan nidur a strond, tar sem tetta var fridagur turfti eg ad leggja af stad klukkutima adur en rutan atti ad fara. Svo tegar eg kom a straetostodina voru ennta 20 min tangad til rutan atti ad leggja af stad tannig eg var i godum malum.
Eg beid og beid en rutan einfaldlega kom ekki, tad var fullt af folki tarna sem ad aetladi a strondina en engin ruta, tannig eg turfti ad bida eftir naestu rutu. Eg kom ekki a strondina fyrr en klukkan 5 (lagdi af stad ad heiman klukkan 2:30) og turfti ad taka rutuna til baka klukkan 7 og kom svo ekki heim fyrr en 8:30.
kvedja jon
P.S. Allar myndirnar minar eru fastar i gomlu tolvunni minni og eg gat ekki nad teim ut adur en eg skipti um fjolskyldu tannig tad gaeti ordid sma bid a fleiri myndum a siduna
»
28.04.2008 17:13:34 / jonbriem
Maettur aftur, buinn ad skipta um fjolskyldu og hitta ta (eld)gomlu og fara til romar og skora mark (naestum).
Skolinn er buinn ad vera i godum filing i april, tad voru sirka 10 skoladagar i april, hellingur af frium sem er natturulega ekkert nema frabaert buinn ad fara i nokkur prof, liffraedikennarinn er ekki ennta buinn ad jafna sig eftir attuna sem eg fekk, vildi svo skemmtilega til ad tetta var allt eitthvad sem ad eg gerdi i fyrra en hun tarf ekkert ad vita tad...
Fotboltinn hefur verid upp og nidur, tarsidasta helgi var horkugod, fyrst tokum vid okkur til og unnum 6-2 og svo spiladi eg med meistaraflokk (svona svipad lid og berserkir plus sma bumba og "nokkur" ar) og vid unnum 5-2. Komum okkur svo a jordina i gaer, 4-1 tap i leik tar sem vid skitum duglega uppa bak. A midvikudaginn er eg svo aftur ad fara ad spila med meistaraflokknum.
Tad er ordid skuggalega heitt herna, 20-25 stig alla daga og tegar tad er sol er hreint helviti ad vera i straeto a leidinn heim ur skolanum, svo eg tali nu ekki um ad keppa, eg tek yfirleitt letta sturtu i halfleik.
Eg er buinn ad skipta um fjolskyldu, nuna er eg hja ekkju med engin born tannig tad er nog af plassi. Stadsetningin er mjog god, naer skolanum og fotboltanum en svolitid fra midbaenum en ekkert stjarnfraedilegt.
A laugardaginn hittum vid svo loksins hina skiptinemana a Sardiniu, reyndar voru teir allir fra Cagliari en tad er tad sama. Tad var mjog gaman ad hitta tau loksins, vid forum til litils baejar a mid-sardiniu og skodudum kastala og kirkju, forum i siglingu og margt fleira.
Tetta er svona tad helsta sem eg man eftir i bili
jon
»
09.03.2008 21:11:22 / jonbriem
Það er svona sirka mánuður síðan ég bloggaði síðast, hef bara aldrei nennt því, ekki alveg nógu gott. Það er samt hellingur búinn að vera í gangi, við unnum meira að segja fótboltaleik í dag og allt.
Ég er búinn að vera að æfa með eldri og yngri síðustu vikurnar og það er búið að vera mjög gaman að prófa með þeim eldri, ég er kannski ekki lengur með stærri mönnum á vellinum en ég er án efa með þeim fljótari. Eini gallinn við að æfa með þeim er að æfingarnar eru búnar klukkan 10, svo þarf ég að taka strætó, fara í sturtu og borða og er yfirleitt alveg búinn á því, sérstaklega á föstudögum þegar ég fer fyrst á æfingu með yngri (kl.6) og svo með eldri, svo til að toppa það þá er skóli á laugardögum hérna.
Síðasta sunnudag (2. mars) kepptum við svo loksins á móti liði sem að er lélegra en við og búnir að lenda í svipuðum vandamálum, léleg mæting og menn að láta eins og hálfvitar. Þeir mættu 5 mín fyrir leik og með varamannabekkinn fullan af yngri gaurum.
Matteo kom okkur yfir í byrjun seinni hálfleiks, límdi kvikindið uppí sammann. Þá var komið að mér, Matteo kom með fyrirgjöf, markmaðurinn og miðvörðurinn fóru báðir uppí boltann og misstu hann báðir yfir sig, ég var fyrstur á boltann og hljóp hann hreinlega inní netið. Næstur til að taka til sinna mála var maðurinn með flautuna, honum tókst á einhvern yfirnáttúrulegan hátt að dæma markið af og dæma aukaspyrnu fyrir hitt liðið. Mér dettur helst í hug að það hafi verið fyrir brot miðvarðarins á markmanninum, alltaf gaman að hafa svona menn inná vellinum til að eyðileggja kraftaverkin. Ég skoraði mark og maðurinn VOGAÐI SÉR AÐ DÆMA ÞAÐ AF!!! Þetta ætti að varða við lög.
Hann var samt ekki hættur, dæmdi víti á okkur þegar "maðurinn datt" inní teig, ég veit nú ekki hvað hann var að reykja fyrir leik en það datt bara enginn, hvorki fyrir innan nér utan teig. Og að lokum "missti hann af" þegar kantmaðurinn reyndi að sparka löppinni á Giuseppe af.
Tvö einstaklega falleg klúður hjá Federico og Simone sáu til þess að við töpuðum 3-1 og eftir síðasta markið fékk Steffano rautt fyrir kjaft, þriðja rauða spjaldið hans í sirka 7 leikjum og 6 í 14 leikjum fyrir allt liðið.
En í dag gerðist það, já við unnum leik!!! Við vorum bara 11 og þeir síðustu komu ekki fyrr en 10 mín fyrir leik. Völlurinn var skemmtileg blanda af sundlaug og grjótharðri möl.
Giuseppe, sem að ég er búinn að segja að spila vörn í mánuði, spilaði í miðverði í dag og setti 2 kvikindi í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik byrjðuðum við vel en undir lokin slökuðum við á og Simone gaf þeim eitt mark. Dómarinn, sem var að mestu leyti góður, tók sig svo til og bætti við korteri í uppbótartíma en það breytti engu, fyrsti sigurinn síðan 25. nóv. kominn í hús og við komnir með heil 10 stig.
Vinur minn (Carlo) hélt svo uppá afmælið sitt um daginn, bauð fullt af fólki í pizzu, það voru svo margir að það var meira að segja boðflenna mætt að fá sér í gogginn. Þegar ég kom hélt ég bara að þetta væri einhver vinur Carlo og pældi ekkert í því fyrr en ég spurði hann hver þetta væri. Þá sagðist hann ekki hafa hugmynd. Hann fór og talaði við hann...
Fyrirgefðu, hvað ertu að gera hérna? Ég? Ég er að bíða eftir Sergio. Hver er Sergio Þekkirðu ekki Sergio? Hvað heitirðu? Felix Og hvaðan ertu Berlín
Hann fór svo eftir smástund, en ekki fyrr en hann var búinn með vínglasið. Við erum búnir að vera að hlæja að þessu alla vikuna, þetta var alveg æðislegur karakter. Við vorum svo að borða og spjalla til 1 og daginn eftir voru allir frekar rólegir í skólanum.
Rótarý og trúnaðarmaðurinn halda áfram að gera það sem þeir eru bestir í, nákvæmlega ekkert. Um daginn sagði trúnaðarmaðurinn að við myndum skipta um fjölskyldu kringum 10. mars, ætli það sé ekki bara svona ofur sveigjanleg dagsetning eitthvað...
Jón
»
15.02.2008 21:42:06 / jonbriem
Ég veit að heimurinn er lítill og allt það... en þetta er bara fáránlegt!!! Þetta byrjaði allt í síðustu viku, við vorum að klæða okkur eftir leikfimi, og strákarnir úr bekknum sem að er með okkur í leikfimi voru að spyrja hvaðan ég væri og svoleiðis. Þegar ég sagðist vera frá Íslandi sögðu þeir "er það?!? Það er ein stelpa frá Íslandi að koma í bekkinn okkar!" Fyrst var ég náttúrulega alveg drullusáttur, ætlaði að drífa mig heim á msn og segja öllum frá. Svo fór ég aðeins að pæla í þessu og hvað það væru nákvæmlega engar líkur á að þetta væri satt, fór ég að halda að þeir hafi verið að ljúga að mér. Þannig að ég ákveð að vera bara rólegur og gera mig ekki að fífli. Neinei, hitti hana í dag, heitir Emma og er úr Grafarvoginum, ertu ekki að grínast. Við spjölluðum eitthvað saman, ég get samt varla talað á íslensku, ég er örugglega betri í ensku núna en íslensku, og það er mikið sagt! Annars flytjum við okkur aftur í gamla skólann í næstu viku, miklu betra, ekki lengur þessar fangaklefastofur, svo var ég að taka eftir því um daginn að nýji skólinn heitir "istituto Agrara" eða stofnunin Agraria, þá er búið að reyna að vista mann á stofnun, virkaði greinilega ekki. Fótboltinn heldur sínu striki, beint niður á við. Það er búið að hætta við 3 síðustu æfingar útaf því að við vorum ekki nógu margir, í dag vorum við svo loksins nógu margir, alveg 10. Liðið verður líklegast lagt niður núna á mánudaginn, en einhverjir af okkur, þeir sem að eru búnir að vera að mæta, fara að æfa með næsta flokk fyrir ofan, sem að er svona eins og Berserkir held ég. Er búinn að fara á eina æfingu með þeim og það leit ekkert út fyrir að vera alltof mikil áhersla á fótbolta  Síðasta sunnudag var enginn leikur, og sunnudaginn þar á undan gerðum við 1-1 jafntefli. Þjálfaranum tókst að klúðra leikskýrslunni og skrifaði mig óvart sem fyrirliða, hey, ekki málið, þetta getur ekki verið svo flókið! Ójú... Mér gekk vel, þangað til að það kom að því að velja fisk eða skjaldarmerki, eftir það fór allt í rugl hjá mér. Leikurinn sjálfur gekk bara ágætlega, við komumst yfir í seinni hálfleik en svo var Giovanni C rekinn útaf fyrir tæklingu sem að hefði verið strangt að dæma svo mikið sem aukaspyrnu á. Þá komust þeir aðeins inní leikinn og jöfnuðu eftir aukaspyrnu, skalli, Simone varði í stöngina, í hnakkann í Simone og inn. Óegðslegasta mark sem að ég hef séð. Jón
»
31.01.2008 19:22:16 / jonbriem
6-1 tap á sunnudaginn...skita... Byrjuðum ekkert alltof illa, fengum reyndar mark á okkur strax í byrjun en jöfnuðum í næstu sókn með drulluflottu marki, Matteo sendi langa stungu á Mirko sem að tók hann niður og lagðann. Þá er upptalningin á góðu hlutunum búin. Þeir komust svo aftur yfir stuttu fyrir hálfleik, bæði mörkin komu útaf því að vörnin var einfaldlega ekki til staðar. Simone var að bjarga okkur aftur og aftur, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Ég byrjaði aftur á miðjunni, en framar núna, sem að var greinilega ekki að virka þannig að í hálfleik færði ég mig aftar og gekk þá eitthvað aðeins betur. Við vorum samt ekkert að ná að sækja, nema einstaka aukaspyrnur sem að við fengum og ég var einu sinni nálægt því að komast í færi en sendingin var of utarlega. Þriðja markið kom svo eftir horn hjá þeim, kom lár bolti á nær og ég ætlaði að skalla hann (í sirka maga/kassahæð ) en sóknarmaðurinn þeirra "sparkaði" (bara smá stroka) í hausinn á mér, við hættum allir enda var þetta pjúra hættuspark en ekkert dæmt og þeir skoruðu í rólegheitunum. Það var frekar heitt fyrir mig þarna, 19 gráður+sól og svo malarryk, þannig að ég var orðinn frekar þreyttur þegar það voru svona 10-15 mín eftir og bað um skiptingu. Síðustu 3 mörkin voru svo bara einhver skita. Þetta lið var samt með einhverja eldri stráka, fyrsta skipti sem að ég er ekki einn af þeim stærstu á vellinum, þannig að þetta er að hluta afsakanlegt. Dómarinn mætti líka með sína eigin reglubók í leikinn, það mátti ekki "standa fyrir aftan manninn" í skallaeinvígi (ég hló lengi að þessum), 3. markið þeirra og svo fékk Giuseppe gult fyrir að spyrja af hverju hann dæmdi aukaspyrnu einu sinni. Takkaskórnir mínir eru dottnir í sundur, þannig að ég þurfti að spila í lánsskóm frá þjálfaranum. Eftir leikinn fór ég beint í matarboð með fjölskyldunni og þaðan til Alghero sem að er bær hérna rétt hjá og var þar fram á kvöld. Þriðjudag og Miðvikudag fór ég á Rótary fundi, fyrst hérna í bænum og svo hjá öðrum klúbbi sem að sendi stelpu til Selfoss. Báðir fundirnir tóku meira og minna hálfan daginn og ég er orðinn nett þreyttur á að taka í hendina á fólki og segja hæ. Jón
»
21.01.2008 21:03:37 / jonbriem
Já það kom loksins að því, við töpuðum ekki! Jafntefli á útivelli og fyrsta stigið okkar síðan í fyrra staðreynd! Svo má líka til gamans nefna það að við höfum bara tapað einu sinni þegar það rignir EKKI, öll stigin okkar hafa komið þegar það var sól. Aftur byrjaði ég á miðjunni og núna spilaði ég allan leikinn þar, Matteo var líka kominn aftur þannig að miðjan okkar var mjög sterk (ég, Mirko, Matteo og Giuseppe) þar sem að ég var að spila djúpur, Mirko á hægri, Giuseppe fremstur og Matteo vinstra megin. Með þessa miðju gekk okkur bara ágætlega, áttum ágætisfæri, og það sem meira var, þeir áttu nánast engin. Ég var að fíla mig í tætlur á miðjunni, tækla hægri vinstri og hlaupa á fullu. Staðan í hálfleik var 0-0 en við áttum meira inni, Federico kom inná í bakvörðinn og þá kom meiri sóknarpressa frá hægri kantinum. Aftur á móti var miðjan hjá okkur aðeins farin að þreytast, Mirko var farinn framm, Matteo í engu formi eftir mánaðarfrí og ég ekki ennþá vanur miðjunni. Um miðjan hálfleikinn kom svo markið, Mirko fékk boltann á miðjunni í skyndisókn og sólaði 3-4 varnarmenn og hljóp alla leið inní teiginn þar sem hann var felldur og við fengum víti. Giuseppe skoraði örugglega úr vítinu. Eftir það ætluðum við að halda þessu og Edouardo fór útaf og strákur úr næsta flokki fyrir neðan sem að heitir Carlo kom inná sem djúpur miðjumaður. Þá skapaðist samt smá chaos á miðjunni því við vorum 4 á miðri miðjunni og engir kantmenn. Þeir komust meira inní leikinn og áttu nokkur færi en Simone bjargaði okkur nokkrum sinnum. Þeir komu svo með fyrirgjöf og boltinn fór í hendina á Stefano sem að var mjög strangur dómur því að hendin var alveg uppvið líkaman. Þeir skoruðu svo úr vítinu en Simone var nálægt því að verja það. Við reyndum að skora annað mark en það kom ekki. Eftir leikinn var ég svo alveg búinn á því og með svakaleg tæklusár, báðum hnjám, báðum lærum og meira að segja á innanverðu hægra hnénu, ég veit ekki einu sinni hvernig ég fór að því. Byrjunarlið: ------------------Simone Giuseppe S.-Stefano-Ricardo-Antonio Mirko-Giuseppe P.-Briem-Matteo -------------------Edouardo ------------Giovanni Trúnaðarmaðurinn lét svo loksins á sér bera í dag, það verður fundur á morgun og vonandi ætlar hann að segja okkur eitthvað af viti. Annars þá var þetta bara frekar venjuleg vika, lítið sérstakt að gerast, fór bara að labba um í bænum með hinum skiptinemunum hérna og þessháttar. Kveðja Jón
»
14.01.2008 20:39:51 / jonbriem
Jæja, ég er með góðar fréttir og slæmar fréttir. Góðu fréttirnar eru þær að United lagði sitt af mörkum við að sýna Newcastle hvernig á að spila fótbolta. Sá leikur var svo endurtekinn hjá okkur í gær, í báðum leikjunum skoraði annað liðið 6 mörk, á meðan hitt liðið skoraði ekkert og gat ekki neitt. Slæmu fréttirnar eru þær að við vorum Newcastle. Ég byrjaði á miðjunni og það gekk alveg ágætlega hjá okkur til að byrja með, en svo kom fyrsta markið þegar dekkingin í aukaspyrnu var engin. þeir fengu frían skalla í miðjum teignum og auðvelt mark. Þá var ég færður í miðvörðinn og það gekk svosem ágætlega til að byrja með en 2 skelfileg klúður eftir stungusendingu og allt komið í rugl. Ég hefði getað bjargað öðru markinu, hljóp á línuna og náði að bjarga en náði ekki að hreinsa almennilega og boltinn var á leiðinni aftur inn þegar ég skallaði hann frá og náttúrulega beint á eina andstæðinginn á öllu svæðinu. 4. markið kom svo þegar Simone rúllaði út á Federico sem að var eitthvað að dútla með boltann, missti hann og mark. Í hálfleik fór ég aftur á miðjuna og við byrjuðum ágætlega, en 2 mörk í viðbót hjá þeim, fyrirgjöf og endurtekning á 4. markinu, kláruðu leikinn endanlega fyrir okkur. Við áttum samt nokkur tækifæri til að skora, meðal annars 3 aukaspyrnur rétt fyrir utan teig í seinni hálfleik og þónokkur færi eftir skelfilega dekkun hjá þeim en það gekk bara ekki neitt. Ég var að sjálfsögðu ógnandi, og alltaf hætta á marki þegar ég er með boltann. Komst 2-3 sinnum nálægt því að skora (þó að ég hafi ekki átt skot á markið, en það er bara aukaatriði). Ég fer svo (vonandi) bráðum að skipta um fjölskyldu trúnaðarmaðurinn ætlaði að halda fund um það en ég hef ekkert heyrt í honum í langan tíma. Það fer að styttast í að ég verði að fara að "rompere palle" eins og ítalirnir segja. Við vorum flutt í annan skóla í dag útaf því að það er ekki pláss í gamla skólanum. Við verðum ú þessum skóla næsta mánuðinn og förum svo aftur. Þessi nýji skóli er ennþá ljótari en hinn, stofurnar minna mig á fangaklefa, veggirnir eru einhvernveginn fangaklefa/geðspítalalegir, frekar krípí eitthvað. Svo skil ég ekki orð af því sem að er sagt útaf því að það bergmálar svo mikið þarna inni. kveðja Jón
»
05.01.2008 14:03:33 / jonbriem
Gleðilegt ár öllsömul! Síðasti leikurinn fyrir jól endaði með ósköpum, í upphitun fyrir leikinn var annar þjálfarinn eitthvað óánægður með Nino og sagði honum að gera hlutina eitthvað öðruvísi, þá fór Nino eitthvað að tala um að hinn þjálfarinn vildi að hann gerði hlutina svona. Þeir voru svo að rífast næstu 5 mínúturnar og þetta endaði með að þjálfarinn sagði að Nino fengi ekki að spila meir. Þá kom pabbi hans og fór að rífast og hann sagði hinum syni sínum, Simone markmanni, að koma líka heim. Það þýddi að við værum í vondum málum og þjálfarinn bakkaði þá og sagði að Nino gæti ekki spilað í dag en hann mætti spila næsta leik. Þá voru allir sáttir og allt í góðu, eeen forsetinn kom á svæðið því hann hafði heyrt öll öskrin og þá byrjaði hann að rífast við pabbann, kom svo inn í klefann og sagði Nino og Simone að drulla sér heim og koma ekki aftur. Strákarnir brjáluðust þá og þá toppaði forsetinn þetta með því að segja að enginn myndi spila, hann ætlaði að leggja liðið niður og gefa leikinn. Þjálfararnir náðu þó að róa hann niður og við byrjuðum leikinn. Í hálfleik ætlaði þjálfarinn svo að skipta inná og leyfa slakari mönnum að spila (sem var alveg eðlilegt, það eru 2 strákar sem mæta á allar æfingar en geta því miður ekki neitt og spila því mjög lítið ) , aftur fór allt í háaloft og fyrirliðinn, Mateo, var næstum farinn að slást við annan þjálfarann. Þá kom forsetinn að redda hlutunum og besta leiðin var að sjálfsögðu að segjast ætla að hætta með liðið og reka alla heim. Hann talaði meira að segja við dómarann um að við myndum gefa leikinn en aftur tókst að róa kallinn niður. Matteo fór samt heim hálfleik og er hættur með liðinu. Fyrsta æfingin eftir jól var í gær og við vorum bara 10 þannig að við keppum ekki á morgun, það lýtur út fyrir að liðið sé að hætta eftir allt saman. Leikurinn tapaðist 3-0 Eftir leikinn fórum við svo til Pozzomaggiore og vorum þar til 29. des. Það var nú ekki mikið að gera þarna, bara lesa og sofa eiginlega, það voru samt 2 frændur þeirra þarna og við spiluðum mjög mikið við þá sem var reyndar orðið svolítið þreytt síðustu dagana. Við fórum einn daginn í sveitina að slátra svíni og þau eyddu svo næstu dögum í að búa til pylsur og eitthvað úr því. Í jólagjöf frá fósturfjölskyldunni fékk ég bolla, peysu, trefil og bók á ítölsku, litlar 500 bls. Áramótin voru svo frekar slöpp, fór með Jake (skiptinemi frá kanada) á tónleika í Piazza Italia (aðaltorgið sem voru nú alveg ágætir og stemmingin fín, flugeldarnir voru verri en á þrettándanum, bara eitthvað smádót. Í dag kom svo pakkinn frá mömmu og pabba, eftir dágóða skitu hjá ítalska póstinum, þeir voru greinilega í vandræðum með að lesa, "Giommaria Cuccuru" breyttist í "Giomarr Culluru"... Ég er búinn að vera í allan að opna pakkann og lesa moggan sem mamma og pabbi notuðu sem fóður, ég er líka "aðeins" búinn að borða af namminu. Laufabrauðið er í molum en ætt og piparkökurnar lifa líklegast ekki morgundaginn. Ég er loksins kominn í jólaskap, bara mánuði á eftir íslendingum. Jólakveðja Jón
»
22.12.2007 20:15:32 / jonbriem
Gleðileg Jól og farsælt komandi nýtt ár öllsömul Ég er að fara á morgun til Pozzomaggiore (bærinn sem að fósturmamma mín fæddist í ) og verð þar þangað til 29(eða 28 ) des. Það er kannski ekki það sem ég vildi helst vera að gera yfir jólin þar sem ég mun ekki hafa neitt að gera þarna en það verður bara að hafa það. Planið er bara að sofa og sofa eins mikið og ég get. Í dag fór ég svo í bæinn að reyna að redda öllu sem ég hafði ekki nennt að gera síðustu vikur, jólakort, jólagjafir og fleira. Náði að redda nánast öllu, nema að pakkinn frá Íslandi er ekki ennþá kominn þannig að ég fæ það ekki fyrr en ég kem til baka, alltaf sama vesenið hjá ítalska póstinum. Á morgun keppi ég á móti Wilier um morguninn og beint eftir það fer ég svo til Pozzomaggiore. Það voru litlu jólin í skólanum í dag, eða svona nokkurnveginn, komum með snakk og drykki og borðuðum, spjölluðum og hlustuðum á tónlist. Mun skárra en venjulegur skóli. Gerðum síðan lest og fórum um skólann að trufla kennslustundir hjá þeim kennurum sem að voru að kenna, það var svona misvinsælt, skólastjórinn kom meira segja og var að eitthvað að skammast, enginn jólaandi í manninum. Alveg skelfilegt. Gleðileg Jól!!! kveðja Jón
»
17.12.2007 21:06:45 / jonbriem
Leikur gegn San Domenica í gær, ég segi bara pffff... Spiluðum á útivelli, litlum bæ 10 mín fyrir utan Sassari og þegar við komum var skítakuldi úti(á ítölskum mælikvarða) og húsið lokað en svo kom maðurinn með lyklana eftir svona 15 mín. Aftur var svakagóð mæting hjá okkur, 14 mættir, 2 varnarmenn og 7 sóknarmenn(og inní þessum pakka eru 2-3 sem teljast varla hæfir til að sparka í bolta). Við byrjuðum ekkert alltof vel, en ágætlega þó og vorum að komast betur inn í leikinn þegar þeir fóru í sókn, við náðum að hreinsa en þeir náður frákastinu, Giovanni C. var of lengi út og spilaði kantmanninn þeirra réttstæðan sem gaf fyrir, ég skallaði frá en miðjumaðurinn þeirra hirti frákastið(aftur) og skaut í fjær hornið. Eftir þetta héldum við samt áfram að bæta okkur, vorum að spila á móti vindi sem hafði smá áhrif en létum það ekkert trufla okkur. Við áttum nokkur ágætisfæri, aukaspyrnu frá Guiseppe P. sem var mjög vel varin og svo flæktumst við hvor fyrir öðrum í frákastinu og stungusendingu frá Mirko á Eduardo en markmaðurinn bjargaði þeim aftur. Dómarinn var að venju í ruglinu, Dario stoppaði stungusendingu með hendinni og ekkert dæmt, rangstöður og aukaspyrnur voru svona 50% rangar en það hafði engin sérstök áhrif(nema að Dario hefði átt að fara útaf með rautt ). Í hálfleik breyttum við aðeins taktínni og áttum alveg möguleika á að jafna en allt kom fyrir ekki. Seinni hluta hálfleiksins fóru hlutirnir síðan að klikka. Fyrst settu þeir nýjan framhejra inná, sem breytti nú svosem engu fyrir utan það að Giovanni C. missti allan áhuga á leiknum og fór að rífast við hann. Giovanni er venjulega frekar mikið útúr leiknum og svolítið illa staðsettur oft en þarna var hann bara farinn að minna á kobba dómara á góðum degi. Þar sem hann var alltaf að rífast eitthvað var aðeins farið að hitna í mönnum þarna og það leið nú ekki á löngu þar til einhver færi að flytja reiðina yfir á dómaran og hrauna duglega yfir hann, sem er einmitt sérgrein nokurra manna í liðinu. Það var hann Dario sem tók það að sér að fá rauða spjald dagsins en það mistókst einmitt hjá honum í fyrri hálfleik. Ég heyrði nú ekki hvað hann sagði við dómarann en það var að sjálfsögðu allt saman saklaust. 3 rauð eftir 6 leiki hjá okkur, ekki slæmt. Þeir bættu síðan við öðru marki stuttu seinna, þeir komust í hraða sókn, sóluðu Giovanni, ég var orðin alltof þreyttur og átti ekki séns, fór í eitthvað bull hlaup á móti manninum og hann breytti aðeins um stefnu, skaut og mark. Þá fóru þeir að tefja eins og ég veit ekki hvað, það mæti halda að þjálfarinn hafi farið á námskeið í þessu, það var beðið um skiptingu sekúndubroti áður en aukaspyrna/markspyrna/innkast var tekið og mennirnir voru ekki á hraðferð á leiðinni útaf. Við vorum samt ekki búnir að gefast upp! Þegar stutt var eftir fengum við horn og ég settur inní teig, takk fyrir góðan daginn, nú átti sko að skora tvö mörk í sömu sókn! Ég kom á ferðinni inní teiginn, aleinn í miðjum teignum, þessi líka svaka fallegi bolti, snúningurinn út, boginn, hæðin rétt og allt, verst að hann kom á næstöngina. Tap, aftur og mórallinn í núlli. Stemmingin í klefanum var mjög sérstök, helmingurinn af liðinu að fagna sigri Milan á Boca Juniors í HM félagsliða, á meðan hinn helmingurinn var að rífast við þjálfarann um liðsuppstillingu, já og svo ég, hlæjandi að þessu öllu. Núna er svo möguleiki á því að liðið fari að hætta ef mætingin batnar ekki, við erum alltaf bara 10 á æfingu og mæting í leiki lítið skárri. Viðhorfið hjá sumum er líka alveg fáránlegt, rífast og hrauna yfir allt sem hreyfist, svo ég tali nú ekki um leiðindin við þá sem eru slakastir, þeir eru alveg lélegir, en þeir skána ekkert ef það er verið að hrauna yfir þá hægri vinstri. Byrjunarlið ---------------Simone-------------- Dario--Giovanni C.--Jón--Giuseppe Pier Gianni-Matteo-Andrea-Danielle ---------------Eduardo-------------- ----------------Mirko---------------- Síðasta vika í skólanum var svo mjög létt, fór til Nuoro á þriðjudeginum, skoða hús einhvers rithöfundar og svoleiðis, bíó á fimmtudeginum ,jejj Beowulf! Á ítölsku...Föstudaginn og laugardaginn komu svo hásólanemar og ráku alla útúr tíma, þetta er einvher ítalskur siður, þeir fá síðan eitthvað klink frá sumum af krökkunum. Í dag ætlaði ég svo að senda pakka heim, hélt að það yrði nú ekki flókið, fara á pósthúsið, fá kassa til að setja þetta í og senda svo. Eeeeekki alveg. Ég kom þarna, og þá eru 3 raðir til að velja úr, í stuttu máli valdi ég vitlausa röð. Ég var samt fljótur að átta mig á því, ekki nema svona 20 mín, og fór í rétta röð. Þegar röðin kom(loksins) að mér kom í ljós að ég hafði byrjað í réttir röð, þurfti nefnilega að kaupa kassann þar, ekki málið, skipti um röð og ætlaði að kaupa kassann en þá var rétta stærðin ekki til, tók bara næstu stærð fyrir ofan, og aftur í röð. Þá þurfti ég að fylla út eitthvað skjal, ekki málið, nema bara ég skil ekki orð af þessu, jú heyrðu það er líka skrifað á ensku! Nei, bíddu, þetta er franska. Ég náði nú að redda þessu en þá var pakkinn minn ekki lokaður, aftur í fyrstu röðina að ná í limband sem gleymdist að láta mig fá. Þá nefnir konan að það væri líklegast betra að ég notaði umslag í staðinn fyrir pakka, ódýrara, jújú, og aftur í röð. Þá þarf aðra gerð af skjali, skrifa það og aftur í röð. "Því miður, við erum að loka, kemur bara aftur á morgun." Og ég kom 2 tímum fyrir lokun. Þetta toppar meira að segja yfirvigtar vesenið. En svo ég endi þetta á léttum nótum þá langar mig bara að minna ákveðna aðila á úrslit gærdagsins Liverpool 0-1 Manchester United Kveðja Jón
»
10.12.2007 14:13:36 / jonbriem
Kepptum á móti Ploaghe 1994 í gær í grenjandi rigningu, þegar leikurinn byrjaði var samt sól og gott veður þannig að maður gerði sér vonir um að spila loksins ekki í rigningu en í seinni hálfleik mígringdi svoleiðis að ég hefði allt eins getað farið í sund. Rigningin hafði líka "smá" áhrif á fótboltann, ekkert hægt að gera við boltann nema kick and run og gamli góði bardaginn um boltann í drullupollinum. Við byrjuðum af krafti, þeir fengu ekki færi fyrstu mínútuna en skoruðu reyndar eftir um svona 30. sek., langskot utan af velli og yfir markmanninn. Við jöfnuðum samt fljótlega, markmaðurinn þeirra með einhverja skitu og Giovanni hirti boltann og skoraði. Þeir skoruðu svo tvö í röð, fyrst þegar rangstöðugildra klikkaði hjá okkur(þjálfarinn heimtaði að við notuðum hana alltaf sem hlaut náttúrulega að enda illa) ég náði manninum reyndar en var ekki í jafnvægi þannig að hann sólaði mig og gaf á næsta mann sem skoraði, og hitt þegar bakvörðurinn okkar fór fram og ég var að dekka tvo, kom stunga á annan og hann skoraði. Í seinni hálfleik þegar það rigndi sem mest vorum við nálægt því að jafna leikinn, Giovanni skoraði annað mark og við vorum að sækja en svo kom annað langskot hjá þeim yfir markmanninn og þá hættu nánast allir. Þeir bættu svo öðru við þegar Ricardo var of lengi að fylgja línunni upp og gerði einn sóknarmann réttstæðan. 2-5 tap níðustaðan og við um miðja deild í augnablikinu með 6 stig og Ploaghe er núna í efsta sæti með 15 stig. Við erum samt búnir að spila á móti flestum góðu liðunum, búnir að spila við 3 efstu liðin. Við erum samt að bæta okkur, við fengum til dæmis ekkert rautt spjald í dag, það skrifast reyndar á dómarann því við gerðum svo sannarlega okkar besta. Þegar 5 mín voru eftir var einn af sóknamönnum þeirra að sleppa í gegn, og var í raun kominn í gegn, þegar Matteo fór beint aftan í löppina á honum. Þetta var svona 10 cm fyrir utan teiginn þannig að þeir fengu bara auka sem þeir klúðruðu. Matteo sagðist hafa ætlað að fara í boltann sem er ein sú versta lygi sem ég hef heyrt, en dómarinn trúði honum og gaf honum ekki einu sinni gult. Ég hefði gefið honum rautt og ekki spurning, aftan í mann sem er kominn einn í gegn! Ég var í hláturskasti næstu mínúturnar. Ég slapp samt ekki ómeiddur í gegnum þennan leik, 2 olnbogaskot í andlitið(er með léttleikandi glóðurauga) og svo lendi ég í svakalegu samstuði við Nino(sem er 190 cm á hæð , ég var að drepast næstu mínúturnar og ef ég hefði vitað hvað ég ætti að segja til að biðja um skiptingu hefði ég farið útaf strax. Svo var líka smávesen með varamenn, voru bara 3 varamenn og bara 2 varnarmenn þannig að ég gat eiginlega ekki farið útaf. Byrjunarlið Simone Edouardo-Ricardo-Jón-Giuseppe Fabrizio-Matteo(c)-Andrea-Nino Mirco-Giovanni Ég tók því nú bara rólega í fríinu í síðustu viku, sofa og svona, keypti líka einhverjar jólagjafir og svona. Á morgun fer ég svo með bekknum í bekkjarferðalag í nágrannabæ, skoða eitthvað safn og eitthvað svoleiðis, örugglega betra en að sitja í skólanum og gera ekki rass. Svo förum við í bíó á fimmtudaginn, Beowulf! reyndar á ítölsku þannig að ég mun örugglega skemmta mér. Á laugardaginn fórum við svo á litla bóndabæinn þeirra, til að gróðursetja eitthvað grænmeti. Við byrjuðum á því að hreinsa steinana burt úr beðinu, sem tók um klukkutíma, þá fóru þeir með lítinn traktor yfir garðinn til að plægja hann. Þá komu enn fleiri steinar í ljós og annar klukkutími í að týna þá. Þegar við vorum loksins búnir þá beið annað beð eftir okkur. Meðan við vorum að þessu þá voru ítalirnir að tala um hvað veturinn væri kaldur...ég var í ofurþunnri úlpu og engu öðru, ekki einu sinni húfu eða neitt, og mér var bara heitt! Ég fer reyndar alltaf í skólann í úlpu en það er vegna þess að það rignir stundum þegar ég er á leiðinnn heim. Eftir leikinn minn í gær fór ég svo og horfði á leikinn hjá Torres, þá var mér reyndar í fyrsta skiptið í langan tíma kalt en ekkert alvarlega. Torres misstu mann útaf með rautt í fyrri hálfleik og lágu það sem eftir var í vörn þannig að það var nú ekki mikið að gerast í leiknum. Torres fengum samt dauðafæri eftir aukaspyrnu, frír skalli 2 metrum frá markinu, í jörðina og yfir. Já það var varnarmaður. Á síðustu mínútu leiksins fengu Torres svo aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, boltinn rúllaði einhvern veginn í gegnum alla hrúguna og í fjær hornið. 1-0 fyrir Torres. kveðja Jón
»
05.12.2007 16:30:48 / jonbriem
spiluðum á móti Oziriese á sunnudaginn, leikurinn var í öðrum bæ þannig að við þurftum að keyra í tæpan klukkutíma til að komast á völlinn. Völlurinn var svo 10 metrum við hliðina á veginum, og 100 m fyrir neðan. Áhorfendurnir voru þónokkrir, aðallega rollur af næsta bóndabæ. Leikurinn sjálfur endaði svo 6-2 fyrir heimamönnum og við fengum eitt rautt í endann... Ekki alveg nógu gott hjá okkur. Við náðum ágætisköflum inná milli en meirihlutinn var skelfilegur. Ég vil samt bara koma því á framfæri að dómarinn vissi jafnmikið um fótbolta og kaktus. Þetta var eitt af því skrautlegasta sem ég hef séð, viljandi hendi bara aukaspyrna, spark aftan í eftir að boltinn er farinn útaf ekki neitt og svo tekur hann næstu 5 mínútur í að útskýra það á meðan leikurinn heldur áfram og að lokum vorum við að komast í stórsókn þegar það kemur í ljós að það var skipting í gangi... Við græddum svosem líka stundum á honum, ég hefði til dæmis fengið rautt ef hann hefði skilið íslensku og gult ef hann hefði vitað að rífa mann niður aftan frá á að vera gult spjald. Varð bara að nýta tækifærið fyrst hann vissi svona lítið greyið. Við erum núna samkvæmt strákunum í 3 sæti í riðlinum sem er frekar skrítið þar sem við vorum í fimmta fyrir þennan leik og fáum mjög ólíklega stig fyrir tap. Ég er búinn að vera að leita að einhverri síðu þar sem ég get skoðað þetta en hef ekkert fundið. Annars var afmæli rótarý klúbbsins hérna um daginn, við skiptinemarnir mættum og ég var að gera mér vonir um mat en því miður voru bara ræður í boði, kom meira segja munkur og hélt ræðu. Í skólanum er ég svo búinn að fara í 3 próf síðustu daga, ensku(munnlegt og skriflegt), stæ og efnafræði. Annars eru ekki nein "jólapróf" bara kaflapróf. Í ensku erum við í einhverju bókmenntaveseni þannig að ég er kannski að fá svona 6-7 í því, lærði ekkert og hef ekki séð sum orðin þarna áður. Í efnafræði var ég með svona 1, svaraði ekki nema svona 5 spurningum og var með 3 réttar, ekki slæmt. Stærðfræðin var samt enn betri, 3 spurningar (og nokkrar undirspurningar) svaraði bara fyrstu, skildi ekki orð í hinum, og var með allavegana eitthvað rétt af því. Kannski svona 1-2 í því. Svo er nú bara frí næstu daga í skólanum, fim-lau, þjóðhátíðardagur eða eitthvað svoleiðis dæmi. Planið er að sofa eitthvað og sofa svo meira, fara svo kannski í jólagjafavesen. Svo er ég HUGSANLEGA að fara á Cagliar-Inter 16. des, samt ekki komið á hreint. kveðja Jón
»
26.11.2007 14:00:47 / jonbriem
Leikur í gær klukkan 11 um morguninn á móti Ossi 2001, ekkert verið að leyfa manni að sofa hérna, völlurinn örlítið blautur, engir pollar samt og engin rigning þegar leikurinn byrjaði og rigndi ekkert allan leikinn, fyrir utan þessar 5 mín. þegar allt fór gjörsamlega á flot. Ég var í miðverðinum og hafði nú svosem ekki mikið að gera í fyrri hálfleik, við gjörsamlega völtuðum yfir þá, mark eftir 5 mín eða svo og svo annað stuttu seinna, klúðruðum líka fullt, fullt, fullt af dauðafærum, auk þess sem að dómarinn var frekar rangstöðuglaður, og hefðum átt að vera 10-0 yfir í hálfleik. Fyrra markið okkar skoraði nýr strákur, Mirco, kom í síðustu viku og er skuggalega góður, var að æfa með Torres en var eitthvað vesen með leikheimild þannig að hann kom bara til okkar og skoraði eitt og bjó til fullt af færum. Hitt markið skoraði Edouardo Seinni hálfleikurinn var ekki alveg eins góður, vorum frekar mikið í miðjumoði og ekkert að spila boltanum af viti, það var samt engin hætta á að þeir myndu skora. Ég fór svo á miðjuna um miðjan seinni hálfleik, brilleraði nátturulega þar, var svona frekar varnarsinnaður, Gattuso... Svo þegar svona 5 mín voru eftir vorum við í sókn og strákurinn með boltann (Andrea) fékk olbogaskot í andlitið, dómarinn dæmdi ekkert,flestir sóknarmennirnir hjá okkur stoppuðu og þeir brunuðu í sókn. Miðvörðurinn okkar var svo í baráttu um boltann og fékk dæmda á sig aukaspyrnu, hann var samt ekkert sáttur við að dómarinn skyldi láta leikinn halda áfram, þar sem Andrea lá í jörðinni með höfuðmeiðsl eftir augljóst brot, og hraunaði soldið yfir dómarann og fékk beint rautt! Ég spilaði svo þessar síðustu 5 mín í miðverði. Við fengum svo víti á síðustu sekúndu leiksins og Andrea skoraði úr því. Byrjunalið Simone Dario Ricardo Jón Giuseppe Nino Andrea Matteo Edouardo Giovanni Mirco(c) Staðan í riðlinum: - Ozierese 9
- Ploaghe 1994 9
- Li Punti 7
- San D. Caniga 6
- Sacra Famiglia 6
- Quantieri Riuniti 6
- San Giorgio 4
- Ossi 2001 3
- Canopoleno 3
- Wilier 1
- Atletico Bono 1
- S. Paolo Apost. 0
- 13. Monserrato 9 (þeir telja ekki, eru með eldri leikmenn og svona, fá bara að vera memm
)
við eigum svo Ozierese næst...
»
22.11.2007 14:16:25 / jonbriem
Blog central er búið að vera bilað þannig að núna koma tvær færslur í einum bunka. Föstudagur 16. nóv. Netið er komið í lag, er reyndar með smá vesen inná milli en nógu gott fyrir mig. Ég hef ekkert nennt að skrifa síðustu daga en núna ætla ég að bæta úr því. Við erum búnir að spila einn æfingaleik síðan síðast, unnum 4-2 og ég setti eitt! Takk fyrir mig, 2 mörk á 3 mánuðum, þetta hefur ekki gerst síðan sumarið ´04! Stórlæsilegt skallamark, alveg útvið stöng, markmaðurinn átti aldrei séns! Fyrsti alvöru leikurinn var svo um daginn, ég gat ekki spilað því leikheimildin var ekki komin, en við unnum 3-1. Leikheimildin kom svo fyrir 2 dögum, þá kom í ljós að rótary þurfti bara að skrifa undir eitthvað skjal. Þjálfarinn okkar tók svo upp á því um helgina að hætta bara. Það var síðan mættur nýr þjálfari daginn eftir og allt á fullt aftur. Ég fór svo um daginn á leik hjá Sassari Torres, lið bæjarinns í Serie C2, og alveg brjáluð stemming, 5000 manns á vellinum og ég rétt hjá "Ultras" stuðningsmönnunum. Allir meira og minna blindfullir og þögnuðu ekki eina sekúndu! Um helgina fór ég svo í brúðkaup með fjölskyldunni, fórum á föstudaginn og gistum hjá frændfólki þeirra. Á sunnudaginn vöknuðum við svo klukkan 7:30 og fórum í rútu í kirkjuna. Athöfnin var svo 2 tímar, bæði á ítölsku og latínu, það fór svo annar klukkutími í myndir. Við borðuðum svo á veitingastað og komum heim um 10. Á mánudeginum komum við svo endanlega heim. Það er nú helst að frétta núna að það er kaldara hjá mér en hjá ykkur, 4 gráður í dag og grey Ítalirnir eru ekki sáttir. Ég er nú svosem ekki að kvarta, í dag fendum við að fara fyrr heim úr skólanum því það var of "kalt" og ofnarnir virkuðu ekki. P.S. Markið mitt var sjálfsmark... Mán 19. nóv. Leikur í gær klukkan 11 um morguninn og búin að vera grenjandi rigning um nóttina þannig að völlurinn var á floti. Ég spilaði allan leikinn í miðverði og var bara frekar sáttur við minn leik. Það byrjaði samt ekki vel því við lentum undir snemma og stuttu seinna fengu þeir víti, markmaðurinn okkar varði sem betur fer vítið og við komumst inn í leikinn og jöfnuðum síðan fyrir hlé. Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri, lentum aftur undir en jöfnuðum og komumst svo yfir. Við vorum að spila mun betur og áttum leikinn nánast en svo þegar lítið var eftir misstum við boltann á miðjunni og þeir orðnir 3 á 2, stunga og mark. Þegar það voru svo 5 mín eftir fengu þeir innkast í línu við teiginn okkar, við héldum að það væri okkar og enginn að dekka og mark. Við klúðruðum svo einu dauðafæri undir lokin. Ofnamálið í skólanum er ekki búið... Það var nefnilega þannig að tæknilega séð máttum við ekki fara heim, ofnarnir virkuðu, þeir bara hitnuðu ekkert, þannig að í dag þurftu allir að koma með foreldra sína í skólann og þeir að "útskýra" afhverju barnið fór heim. Þegar meira en helmingurinn af foreldrunum komu ekki var hætt við þetta.
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 10 Alls: 8167
|